7.12.2006 | 11:03
Prinsessan á bauninni
Margrét Sverrisdóttir, þú er alveg makalaus og hreint ótrúlega ósvífin kona og átt sennilegast fáa þína líka. Í glórulausri valdabaráttu og valdagræðgi er þér sama hvort þú klúfir þinn eigin flokk í herðar niður undir gunnfána valdasýkinnar. Það að notfæra sér inngöngu fólks í flokkinn sem skálkaskjól til að breiða yfir plott sem staðið hefur yfir svo misserum skiptir er svo ótrúlega ófyrirleitið að engu tali gengur að nefna. Það skiptir þig engu máli hvort þú sem framkvæmdastjóri eigin flokks niðurlægir þína eigin þingmenn, sakar þá um rasisma og slæleg vinnubrögð og það skiptir þig engu máli hvort þú rjúfir trúnað við þá sem hafa starfað þér næst. Mundu eftirfarandi: Sér grefur gröf þótt grafi.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.