Prinsessan á bauninni

Margrét Sverrisdóttir, þú er alveg makalaus og hreint ótrúlega ósvífin kona og átt sennilegast fáa þína líka. Í glórulausri valdabaráttu og valdagræðgi er þér sama hvort þú klúfir þinn eigin flokk í herðar niður undir gunnfána valdasýkinnar. Það að notfæra sér inngöngu fólks í flokkinn sem skálkaskjól til að breiða yfir plott sem staðið hefur yfir svo misserum skiptir er svo ótrúlega ófyrirleitið að engu tali gengur að nefna. Það skiptir þig engu máli hvort þú sem framkvæmdastjóri eigin flokks niðurlægir þína eigin þingmenn, sakar þá um rasisma og slæleg vinnubrögð og  það skiptir þig engu máli hvort þú rjúfir trúnað við þá sem hafa starfað þér næst. Mundu eftirfarandi: “Sér grefur gröf þótt grafi.”

« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband